Þriðjudagsglíman að þessu sinni er ekki af verri endanum en hún er frá opnum flokki brúnbeltinga á London International Open 2013. Þar eigast við þeir Ingþór Örn Valdimarsson og Luiz Claudio Oliveira Finocchio. Ingþór Örn er í svörtum galla en Luiz er í bláum.
Íslendingurinn öflugi varð í öðru sæti í flokki brúnbeltinga í sínum þyngdarflokki (-91 kg) án galla en í þriðja sæti í opnum flokki brúnbeltinga og sínum þyngdarflokki (94,3 kg) í galla.
Ingþór Örn hefur verið iðinn við kolann upp á síðkastið en hann sigraði -94kg og opinn þyngdarflokk karla á Íslandsmeistaramótinu í BJJ sem fór fram síðustu helgi.
vel gert 🙂
Glæsilegt