Í þriðjudagsglímu vikunnar mætast tveir af bestu glímumönnum allra tíma, Ronaldo “Jacare” Souza og Roger Gracie. Báðir eru fyrrum heimsmeistarar í BJJ og sigurvegarar á hinum fræknu ADCC mótum. Þessi glíma átti sér stað á Mundials 2004 (heimsmeistaramótið í BJJ) í úrslitum opins flokks svartbeltinga. Þeir höfðu mæst áður í úrslitum opins flokk brúnbeltinga tveimur árum fyrr þar sem Gracie sigraði. Glíman er ein frægasta glíma allra tíma og er mjög umdeild þar sem Jacare handleggsbrotnaði í lok glímunnar! Sjón er sögu ríkari en glímuna má sjá hér að neðan.
Latest posts by Brynjar Hafsteinsson (see all)
- Magnús ‘Loki’ keppir sinn fyrsta atvinnumannabardaga í mars - February 28, 2018
- 2017: Bestu bardagar ársins - January 7, 2018
- Nokkrar ástæður til að horfa á UFC 218 - December 1, 2017