Tuesday, March 19, 2024
HomeForsíðaÞrír Mjölnismenn berjast í Póllandi um helgina

Þrír Mjölnismenn berjast í Póllandi um helgina

Þrír bardagamenn frá Mjölni berjast í Póllandi á laugardaginn. Strákarnir berjast áhugamannabardaga í MMA á Contender Fight Night kvöldinu.

Þetta verður í fyrsta sinn sem bardagamenn frá Íslandi keppa í MMA síðan í febrúar 2020. Þá kepptu þeir Krzysztof Porowski og Remek Duda Maríusson í Skotlandi fyrir hönd Reykjavík MMA en skömmu síðar skall kórónuveiran á og hefur lítið verið um MMA bardaga í Evrópu fyrir utan þessi stærstu bardagasamtök.

Daniel Alot mætir Dawid Biedron í 68 kg hentivigt. Daniel er 3-1 sem áhugamaður en allir þrír sigrarnir eru eftir rothögg.

Bjarki Eyþórsson mætir Remigiusz Jablonski í 77 kg veltivigt. Bjarki er 1-0 sem áhugamaður í MMA en hans fyrsti bardagi var í september 2017 þar sem hann sigraði með hengingu í 1. lotu. Síðan þá hefur Bjarki átt erfitt með að fá bardaga, glímt við meiðsli og missti bardaga vegna kórónuveirunnar í fyrra. Nú fær hann loksins tækifæri til að berjast aftur og verður gaman að fylgjast með honum á laugardaginn.

Aron Franz Bergmann Kristjánsson keppir sinn fyrsta MMA bardaga um helgina þegar hann mætir Michal Oleksy í 66 kg fjaðurvigt. Aron hefur æft MMA í u.þ.b. tvö ár og tók sinn fyrsta box bardaga á dögunum.

Bardagarnir fara fram á Contender Fight Night í Póllandi á laugardaginn og hefst fyrsti bardagi kl. 16:00 á íslenskum tíma. Samkvæmt mótshöldurum verður streymt frá bardögunum en mun þó velta á nettengingu í höllinni.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular