Þrír Íslendingar kepptu í Muay Thai í gær í Svíþjóð á Källarträffen goes Gympasal bardagakvöldinu. Strákarnir koma heim með tvo sigra, eitt tap og góða reynslu.
Þeir Adrian Drążkiewicz og Jakub Sebastian Warzycha kepptu báðir í C-flokki (legghlífar notaðar) og unnu báðir sína bardaga 3-0.
Þórður Bjarkar keppti í semi-pro (B-flokki, engar legghlífar) og mætti þar sterkum andstæðingi. Bardaginn var fimm lotu stríð þar sem Þórður tapaði naumlega, 2-1. Bardaginn var tæknilegur en þetta var í fyrsta sinn sem Þórður keppir bardaga þar sem olnbogar og hné í höfuð eru leyfð.
Hér að neðan má sjá fimmtu og síðustu lotuna hjá Þórði.