Wednesday, April 24, 2024
HomeInnlentTveir sigrar og eitt tap á Golden Ticket

Tveir sigrar og eitt tap á Golden Ticket

Þrír bardagamenn frá Mjölni kepptu á Golden Ticket bardagakvöldinu um helgina. Tveir sigrar og eitt tap var niðurstaðan.

Aron Franz var í fyrsta bardaga kvöldsins þegar hann mætti Oskar Lang. Bardaginn var fjörugur og jafn þar sem báðir sóttu ákaft. Bardaginn fór allar þrjár loturnar og féll sigurinn Arons megin. Þetta var fysti sigur Arons í MMA og mátti sjá að sigurinn var honum afar kærkominn. Aron hefur áður tapað eftir klofna dómaraákvörðun en núna kom sigurinn. Aron átti þetta svo sannarlega skilið enda lagt hart að sér á undanförnum árum.

Venet Banushi mætti Ryan Lockie í léttvigt. Venet sótti af krafti strax á fyrstu mínútu og var augljóst að Lockie vildi ekki standa með Venet. Lockie reyndi hengingu en Venet hristi það af sér og komst ofan í gólfinu þar sem hann lét höggin dynja á Lockie þar til dómarinn stöðvaði bardagann. Þetta var mjög sannfærandi sigur, tæknilegt rothögg í 1. lotu og má búast við að beltið verði fljótlega á dagskrá hjá Venet.

Julius Bernsdorf barðist sinn fyrsta bardaga í þrjú ár í gær. Julius mætti Branden Guest í fimm lotu titilbardaga. Bardaginn var mjög taktískur og hélst standandi allan tímann. Bardaginn fór í dómaraákvörðun og sigraði Guest eftir klofna dómaraákvörðun. Guest hélt því beltinu en sitt sýnist hverjum um niðurstöðu dómaranna. Þetta féll þó ekki með Julius í þetta sinn en Julius stóð sig frábærlega og fékk ómetanlega fimm lotu reynslu.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular