Tuesday, April 23, 2024
HomeErlentUFC 242 Countdown

UFC 242 Countdown

UFC 242 fer fram á laugardaginn í Abu Dhabi. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Khabib Nurmagomedov og Dustin Poirier en Countdown þátturinn fyrir kvöldið er kominn á sinn stað.

UFC 242 verður mjög spennandi bardagakvöld. Bardagakvöldið er á frábærum tíma hér á Íslandi þar sem bardagarnir fara fram í Mið-Austurlöndum en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl. 18:00.

Khabib mætir bráðabirgðarmeistaranum Dustin Poirier en þetta verður fyrsti bardagi Khabib eftir sigurinn á Conor McGregor í fyrra.

Paul Felder og Edson Barboza mætast öðru sinni í næstsíðasta bardaga kvöldsins.

Countdown þáttinn í heild sinni má sjá hér að neðan.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular