Wednesday, April 24, 2024
HomeErlentUFC 248 vigtun - beðið eftir Yoel Romero

UFC 248 vigtun – beðið eftir Yoel Romero

Vigtunin fyrir UFC 248 stendur yfir þessa stundina. Israel Adesanya, Weili Zhang og Joanna Jedrzejczyk náðu öll vigt en beðið er eftir Yoel Romero.

Formlega vigtunin fyrir UFC 248 fer fram þessa stundina á hóteli bardagamanna í Las Vegas.

Millivigtarmeistarinn Israel Adesanya var fyrstur til að mæta í vigtunina en hann var 184,5 pund eða hálfu pundi undir. Weili Zhang var 115 pund slétt og sömuleiðis andstæðingur hennar, Joanna Jedrzejczyk.

Allir aðrir bardagamenn kvöldsins hafa náð vigt nema Yoel Romero og Emily Whitmire. Romero hefur tvisvar mistekist að ná vigt en í bæði skiptin var um titilbardaga að ræða. Romero þarf að vera 185 pund (83,9 kg) eða undir en fyrr í vikunni var hann bjartsýnn fyrir niðurskurðinn. Romero sagðist vera 198 pund (89,8 kg) á mánudaginn og var hann á undan áætlun á þeim tíma að eigin sögn.

Vigtunin hófst kl. 17 og klárast kl. 19 á íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með vigtuninni hér að neðan.

*Uppfært 18:10: Emili Whitmire náði ekki vigt. Hún var 117,5 pund en henni var tjáð af NAC (íþróttasamband Nevada) að hún gæti ekki skorið meira niður.

*Uppfært 18:44: Yoel Romero náði vigt! Romero var 185 pund slétt!

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular