UFC hefur nú staðfest sitt fyrsta bardagakvöld í Rússlandi. Bardagakvöldið verður Fight Night kvöld og ólíklegt að Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov mætist á kvöldinu.
UFC hefur lengi stefnt af því að halda bardagakvöld í Rússlandi en ýmsar hindrarnir verið á þeirra vegi. Nú hafa þeir staðfest bardagakvöld laugardaginn 15. september á Olimpiyskiy Arena í Moskvu.
Ótal Rússar eru í UFC þessa dagana en enginn jafn þekktur eins og Khabib Nurmagomedov. Khabib varð léttvigtarmeistari í apríl en hans fyrsta titilvörn verður í haust. Titilvörnin verður þó að öllum líkindum á Pay Per View bardagakvöldi í Bandaríkjunum.