UFC mun um helgina halda viðburð í Filippseyjum í fyrsta sinn. Lengi hefur verið talað um UFC bardagakvöld í landinu og er nú loksins komið að því. Bardagarnir fara fram á besta tíma hér á landi.
Aðalbardagi kvöldsins verður spennandi viðureign milli Urijah Faber og Frankie Edgar. Um nokkurs konar ofurbardaga er að ræða enda eru báðir þekkt nöfn sem berjast ekki í sama þyngdarflokki. Faber hefur undanfarin ár barist í bantamvigt en fer upp í fjaðurvigt fyrir þennan bardaga. Edgar hefur undanfarin tvö ár barist í fjaðurvigt eftir að hafa barist lengst af í léttvigt. Faber hefur þrisvar barist um titil í UFC en alltaf tapað. Edgar var léttvigtarmeistari um skeið áður en hann fór niður í fjaðurvigt og skoraði á fjaðurvigtarmeistarann Jose Aldo.
Öll sjö töp Urijah Faber komu í titilbardaga, ýmist í WEC eða UFC, en WEC voru bardagsamtök sem sérhæfðu sig í minni þyngdarflokkunum og var keypt af Zuffa (eigendur UFC). Á sama tíma hafa þrjú af fjórum töpum Edgar komið í titilbardaga. Það er því óhætt að segja að báðir menn tapi aðeins fyrir þeim bestu.
Auk Faber og Edgar er nokkuð um skemmtilega bardaga á bardagakvöldinu. Einn af þeim er bardagi Mark Munoz og Luke Barnatt en Munoz á ættir að rekja til Filippseyja. Þetta verður síðasti bardagi hans á ferlinum og viðeigandi að lokabardaginn fari fram á „heimaslóðum“. UFC hefur sent frá sér stutt kynningarmyndbönd í kringum bardagann sem sjá má neðst í fréttinni.
Það sem er kannski jákvæðast við þetta bardagakvöld er tímasetningin. Sex bardaga aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 14 á íslenskum tíma en fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 11 á laugardagsmorgni. Þetta er því kærkomin tilbreyting fyrir Íslendinga sem eru vanir því að horfa á UFC að nóttu til.
Bardagakvöldið er svo hljóðandi:
Fjaðurvigt: Frankie Edgar gegn Urijah Faber
Millivigt: Gegard Mousasi gegn Costas Philippou
Millivigt: Mark Munoz gegn Luke Barnatt
Veltivigt: Hyun Gyu Lim gegn Neil Magny
Fjaðurvigt: Philippe Nover gegn Yui Chul Nam
Fjaðurvigt: Mark Eddiva gegn Levan Makashvili