Saturday, May 4, 2024
HomeErlentUFC kynnir nýja stefnu í lyfjamálum

UFC kynnir nýja stefnu í lyfjamálum

jeff novitsky
Jeff Novitsky.

UFC hélt blaðamannafund fyrr í dag þar sem bardagasamtökin kynntu nýja stefnu í lyfjamálum. Þetta kemur í kjölfarið á nýrri stefnu íþróttasambands Nevada ríkis.

Í maí kynnti íþróttasamband Nevada harðari refsingar í lyfjamálum. Þeir sem verða fundnir sekir um steranotkun af íþróttsambandi Nevada geta átt yfir höfði sér þriggja ára bann. Einum mánuði síðar hefur UFC kynnt sína stefnu.

Jeff Novitzky, varaforseti íþrótta-, heilsu- og frammistöðudeildar UFC, kynnti þessar nýju breytingar á blaðamannafundi í Las Vegas fyrr í dag. Novitzky segir nýju stefnuna vera þá bestu í íþróttum í dag. Nýja stefnan tekur gildi þann 1. júlí og er unnin í samstarfi við USADA (US Anti-Doping Agency).

Í nýju stefnunni hefur verið hert á refsingum auk þess sem lyfjaprófin verða algengari. Nú geta allir 500+ bardagamenn innan UFC átt von á lyfjaprófi hvenær árs sem er – hvort sem það er utan keppni eða skömmu fyrir bardaga. Bardagamenn munu bæði gangast undir þvagprufu og blóðprufu og gildir engu hvar í heiminum keppendur verða staðsettur.

Refsingarnar svipa mikið til refsinga íþróttasambands Nevada en hér að neðan má sjá refsingar UFC.

“Non-specified substances”

As defined by WADA code: Anabolic steroids, growth hormones, peptides, blood doping drugs and methods (tested for in- and out-of competition):

  • 1st offense: 2 years (with possibility of 4 years for “aggravating circumstances”)
  • 2nd offense: Double the sanction for the 1st offense
  • 3rd offense: Double the sanction for the 2nd offense

“Specified substances”

As defined by WADA code: marijuana, cocaine, other stimulants and glucocorticosteroids (tested for in-competition only):

  • 1st offense: 1 years (with possibility of 2 additional years for “aggravating circumstances”)
  • 2nd offense: Double the sanction for the 1st offense
  • 3rd offense: Double the sanction for the 2nd offense

Þetta er stór dagur fyrir UFC. Þetta verður stefna sem aðrar íþróttagreinar munu vonandi fylgja til að taka á lyfjamisferli í íþróttum.

USADA er óháður aðili og mun sjá um lyfjaprófin. UFC mun þó borga kostnaðinn af þessum lyfjaprófunum en kostnaðurinn hleypur á milljónum dollurum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular