Saturday, April 20, 2024
HomeErlentUFC molar - TUF 23, Sage Northcutt og staðfest bardagakvöld í Króatíu...

UFC molar – TUF 23, Sage Northcutt og staðfest bardagakvöld í Króatíu og Hollandi

UFC Logo Vector ResourceÞað er ekkert UFC um helgina en hér má sjá nokkra UFC mola frá síðustu dögum.

Joanna og Claudia þjálfa TUF: Það verða þær Joanna Jedrzejczyk og Claudia Gadelha sem þjálfa 23. seríu The Ultimate Fighter. Þetta kom fram í útsendingu UFC Fight Night: Dillashaw vs. Cruz síðasta sunnudag. Strávigtarmeistarinn Jedrzejczyk mun svo verja beltið sitt gegn Gadelha á TUF Finale bardagakvöldinu 8. júlí eða daginn fyrir UFC 200.

Í seríunni verða bardagamenn í léttþungavigt og strávigt kvenna.

sage northcutt

Sage Northcutt fær nýjan andstæðing: Hinn afar efnilegi Sage Northcutt átti að mæta Andrew Holbrook á UFC on FOX bardagakvöldinu þann 30. janúar. Nú hefur Holbrook þurft að draga sig úr bardaganum vegna meiðsla en í hans stað kemur Bryan Barbarena. Bardagi Northcutt átti upphaflega að fara fram í léttvigt en bardaginn gegn Barbarena fer fram í veltivigt. Það gefur Barbarena meira svigrúm í niðurskurðinum og þarf því ekki að skera of mikið á of stuttum tíma.

Barbarena er ekki beint að koma af sófanum þar sem hann var nú þegar að undirbúa sig fyrir bardaga þann 21. febrúar. Barbarena er 1-1 í UFC en 10-3 í MMA. Hann er sterkur glímumaður og hefur klárað átta bardaga með rothöggi.

Staðfestar dagsetningar fyrir UFC í Króatíu og Hollandi: Líkt og við greindum frá í nýlega var talið að UFC myndi halda til Hollands og Króatíu í ár. Sá orðrómur reyndist á rökum reistur enda staðfesti UFC bardagakvöldin nýlega. UFC mun heimsækja Króatíu þann 10. apríl og í Rotterdam í Hollandi sunnudaginn 8. maí.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular