UFC staðfesti í morgun að Gunnar Nelson sé meiddur og berjist ekki í Belfast. Aðalbardaginn í Belfast verður því viðureign Gegard Mousasi og Uriah Hall.
Ariel Helwani greindi fyrstur frá þessu á föstudagskvöld en núna hefur UFC staðfest frétt hans. Gunnar Nelson átti að mæta Dong Hyun Kim í aðalbardaganum í Belfast þann 19. nóvember. Ekki er vitað hversu lengi Gunnar verði frá.
Gegard Mousasi og Uriah Hall mættust í Japan í september í fyrra þar sem Hall tókst að rota Mousasi með miklum tilþrifum. Síðan þá hefur Mousasi viljað ná fram hefndum og fær nú ósk sína uppfyllta.