Valgerður Guðsteinsdóttir, fyrsta íslenska konan til að keppa í atvinnuhnefaleikum, er komin með sinn næsta bardaga. Bardaginn fer fram á stóru kvöldi í Noregi þann 21. október.
Valgerður Guðsteinsdóttir (2-0) sigraði síðast Marianna Gulyas mjög örugglega í maí eftir dómaraákvörðun. Gulyas var mun reyndari en Valgerður en þetta var hennar 39. atvinnubardagi.
Í þetta sinn mætir hún Dominika Novotny en þetta verður hennar fyrsti atvinnubardagi í boxi. Novotny hefur aftur á móti mikla reynslu úr sparkboxi.
Bardaginn fer fram á Oslofjord Fight Night en í aðalbardaga kvöldsins mætast þær Cecilia Brækhus og Mikaela Lauren. Brækhus er afar stórt nafn í Noregi og ósigruð í 31 bardaga. Bardagarnir fara fram í Oslofjord Conference Center höllinni og verður spennandi að fylgjast með Valgerði.
Myndir: Snorri Björns.