Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the td-cloud-library domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /var/www/virtual/mmafrettir.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6121
Átta Íslendingar keppa á Evrópumeistaramótinu í MMA |
spot_img
Monday, April 21, 2025
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeForsíðaÁtta Íslendingar keppa á Evrópumeistaramótinu í MMA

Átta Íslendingar keppa á Evrópumeistaramótinu í MMA

ct mjölnirEvrópumeistaramót áhugamanna í MMA fer fram í Birmingham í nóvember. Átta Íslendingar munu taka þátt í mótinu og keppa fyrir hönd Íslands.

Þetta er í fyrsta sinna sem IMMAF, International MMA Federation, heldur slíkt Evrópumót. IMMAF hefur tvívegis haldið heimsmeistaramót áhugamanna, síðast í júlí í Las Vegas í sömu viku og International Fight Week UFC fór fram.

Mótið fer fram 19-22. nóvember í Birmingham og geta þeir sem hafa tekið þátt í atvinnumannabardögum ekki keppt. Íslendingarnir átta koma öll úr röðum Mjölnis en þetta eru þau Bjartur Guðlaugsson, Bjarki Ómarsson, Bjarki Þór Pálsson, Hrólfur Ólafsson, Pétur Jóhannes Óskarsson, Inga Birna Ársælsdóttir, Sunna Rannveig Davíðsdóttir og Þórir Örn Sigurðsson. Bjartur, Pétur og Inga eru að fara að keppa sína fyrstu MMA bardaga.

Mótið fer fram á nokkrum dögum og geta þeir sem fara alla leið búist við að berjast nokkra bardaga á þessum þremur dögum. Vigtun fer fram fyrir hvern bardaga svo flestir munu eflaust keppa einum flokki ofar en venjulega er gert.

IMMAF er í samstarfi við UFC og verða bardagarnir sýndir á Fight Pass rás UFC.

IMMAF-Euro-Open-Square-Copy

spot_img
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið