Friday, April 26, 2024
HomeErlentADCC 2015: Lítið um óvænt úrslit á fyrri degi mótsins

ADCC 2015: Lítið um óvænt úrslit á fyrri degi mótsins

ADCC-602x401Fyrri degi ADCC var að ljúka. Undanúrslitin og opni flokkurinn fara fram á morgun en hér má sjá hverjir mætast á morgun í hverjum flokki.

UFC bardagamennirnir sem kepptu í dag áttu misjöfnu gengi að fagna. Ben Henderson tapaði fyrir Abdukadirov Magomed í fyrstu umferð eftir „rear naked choke“ en hann keppti í -77 kg flokki.

Hector Lombard, sem keppir að jafnaði í -77 kg flokki í UFC, keppti í dag í -99 kg flokki. Hann sigraði Jason Bukich á stigum í fyrstu umferð en tapaði svo fyrir Xande Ribeiro eftir dómaraákvörðun í næstu umferð.

Léttvigtarmaðurin Gilbert Burns sigraði báðar glímur sínar í dag og er kominn í undanúrslit. Hann mætir Davi Ramos í -77 kg flokki. Burns varð heimsmeistari í sínum flokki árið 2011 en hefur síðan þá lítið keppt í BJJ til að einbeita sér að MMA. Þar hefur honum vegnað vel og er 3-0 í UFC og ósigraður í tíu bardögum samtals.

Óvæntustu úrslit dagsins var sennilega sigur Lucas Lepri á Garry Tonon. Tonon hefur verið á mikill siglingu á undanförnu og bjuggust margir við sigri hans í -77 kg flokki. Annars fór dagurinn að mestu eftir bókinni og eru þau Gabi Garcia, Rubens Cobrinha, Keenan Cornelius, Xande Ribeiro, Rodolfo Vieira og Mackenzie Dern öll komin í undanúrslit.

Ofurglíma dagsins var viðureign gamlingjanna Mario Sperry og Ricardo Liborio. Liborio fór með sigur af hólmi í heldur tíðindalítilli glímu eftir nokkrar framlengingar.

Hér að neðan má sjá viðureignir morgundagsins

-66kg flokkur karla

Rubens Charles vs. Augusto Mendes
Bruno Frazzato vs. Geo Martinez

-77kg flokkur karla

Otavio Souza vs. Lucas Lepri
Davi Ramos vs. Gilbert Burns

-88kg flokkur karla

Romulo Barral vs. Yuri Simoes
Rustam Chsiev vs. Keenan Cornelius

-99kg flokkur karla

Joao Assis vs. Felipe Pena
Xande Ribeiro vs. Rodolfo Vieira

+99kg karla

Orlando Sanchez vs. Vinny Magalhaes
Jared Dopp vs. Joao Rocha

-60kg flokkir kvenna

Michelle Nicolini vs. Tammy Musucemi
Mackenzie Dern vs. Beatriz Mesquita

+60kg flokkur kvenna

Gabi Garcia vs. Jessica Oliveira
Ana Lauta Cordeiro vs. Amanda Santana
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular