Amanda Nunes var send upp á spítala fyrr í dag. Nunes á að mæta Valentinu Shevchenko í aðalbardaga UFC 213 í kvöld en nú er óljóst hvort bardaginn fari fram.
Nokkrir traustir blaðamenn hafa greint frá þessu en UFC hefur ekkert tjáð sig enn.
Amanda Nunes has been feeling ill this week. She’s currently in the hospital. Tonight’s main event is in jeopardy. No official word yet.
— Ariel Helwani (@arielhelwani) July 8, 2017
Multiple sources have told me Amanda Nunes is 100 percent off UFC 213 tonight.
— Brett Okamoto (@bokamotoESPN) July 8, 2017
Nunes er sögð hafa verið slöpp alla vikuna og var send á sjúkrahús í dag. Verði Nunes ófær um að keppa mun bardagi Robert Whittaker og Yoel Romero aðalbardagi kvöldsins. Ekkert er þó staðfest enn sem komið er en ekki lýtur þetta vel út.