Anderson Silva hefur verið vikið úr starfi þjálfara í fjórðu þáttaröð raunveruleikaþáttarins The Ultimate Fighter: Brazil. Í hans stað kemur Antonio Rodrigo Nogueira.
Íþróttasamband Nevada-fylkis bað um að Silva tæki ekki þátt í TUF þar sem hann er í keppnisbanni. Vegna bannsins getur hann ekki fengið leyfi til að vera í horni bardagamanna og því getur hann ekki tekið þátt.
Dana White, forseti UFC, sagði í síðustu viku að Silva myndi þjálfa annað liðið í TUF þrátt fyrir keppnisbannið, en UFC varð við beiðni íþróttasambandsins.
Antonio Rodrigo Nogueira, fyrrverandi þungavigtarmeistari UFC og Pride, kemur í stað Silva og tvíburabróðir hans, Antonio Rogerio Nogueira, verður aðstoðarþjálfari. Mauricio ‘Shogun’ Rua þjálfar liðið sem keppir á móti þeim.