Bellator 153 fór fram í gær. Fyrrum léttvigtarmeistari UFC, Ben Henderson, háði frumraun sína í Bellator í gær og Michael Page lét óþekktan bardagamann finna fyrir því.
Ben Henderson ákvað að yfirgefa UFC og fékk betri samning í Bellator fyrr á árinu. Hann mætti veltivigtarmeistaranum Andrey Koreshkov í fyrsta bardaga sínum í Bellator í gær.
Henderson ætlar að berjast bæði í léttvigt og veltivigt í Bellator en Koreshkov var talsverst stærri og kraftmeiri í gær heldur en Henderson. Koreshkov hafði yfirburði nær allan bardagann og sigraði eftir dómaraákvörðun, 50-45. Ekki draumabyrjun hjá Henderson og spurning hvort hann fari niður í léttvigt næst.
Bretinn Michael Page fékk enn og aftur óþekktan andstæðing í gær sem reyndist vera lítil áskorun fyrir hann. Page sigraði Jeremie Holloway með „toe hold“ uppgjafartaki eftir 2:15 í fyrstu lotu. Enn einn auðveldi sigurinn fyrir Page.
Page mun næst mæta Fernando Gonzalez á fyrsta bardagakvöldi Bellator í London. Page átti að mæta Gonzalez fyrr á árinu en meiddist og fékk því bardagann gegn Holloway mánuði síðar. Gonzalez er sterkari andstæðingur en Holloway og verður klárlega erfiðari prófraun fyrir Page en fyrri andstæðingar hans hingað til.
MVP wins by toe hold in the 1st round. Incredible. #Bellator153 pic.twitter.com/xmqkAGuS1h
— Justin Golightly (@SecretMovesMMA) April 23, 2016
Started like this and ended with the counter toe hold @Michaelpage247 #Bellator153 pic.twitter.com/wjqnFVoKXY
— Bellator MMA (@BellatorMMA) April 23, 2016