UFC mun snúa aftur til London þann 27. febrúar á næsta ári. Í aðalbardaganum mætast þeir Michael Bisping og Gegard Mousasi.
UFC hefur ekki haldið viðburð í London síðan 8. mars 2014. Það kvöld vann Gunnar Nelson Rússann Omari Akhmedov með „guillotine“ hengingu í fyrstu lotu.
Aðalbardaginn ætti að vera spennandi viðureign í millivigt þar sem Michael Bisping mætir Gegard Mousasi. Bisping hefur ekki barist í Englandi síðan hann vann Yoshihiro Akiyama árið 2010. Þá mun Finninn skemmtilegi Makwan Amirkhani mæta Bretanum Mike Wilkinson. Amirkhani hefur harma að hefna þar sem Wilkinson steinrotaði æfingafélaga hans, Niklas Backström, í október 2014.
Þriðji bardaginn sem var tilkynntur er viðureign Norður-Írans Norman Parke en hann mætir Rustam Khabilov.
Miðasala hefst föstudaginn 4. desember hér en bardagarnir fara fram á O2 Arena.