Mjölnismaðurinn Bjarni Kristjánsson keppir á heimsmeistaramóti áhugamanna í MMA. Mótið fer fram í Las Vegas í næstu viku en þetta er í þriðja sinn sem mótið fer fram.
Bjarni keppir í léttþungavigt (92 kg) og hefst mótið á þriðjudaginn. Mótið er hluti af International Fight Week í UFC sem er einn af hápunktum ársins hjá UFC.
IMMAF (International Mixed Martial Arts Federation) halda árlega Heimsmeistara og Evrópumót. Í fyrra tóku átta Íslendingar þátt á Evrópumótinu þar sem þau Sunna og Bjarki Þór urðu Evrópumeistarar.
230 keppendur eru skráðir til leiks á þetta World Championships of Amateur MMA mót í 13 þyngarflokkum (karla og kvenna). 19 keppendur eru í flokkinum hans Bjarna og getur hann átt von á því að keppa nokkra bardaga á nokkrum dögum fari svo að hann sigri og komist áfram.