spot_img
Wednesday, October 23, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeErlentConor McGregor hringdi í veikan aðdáanda

Conor McGregor hringdi í veikan aðdáanda

Conor McGregor
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Conor McGregor er á fullu í undirbúningi sínum fyrir titilbardaga sinn gegn Jose Aldo þann 11. júlí. Írinn tók sér engu að síður tíma til að hringja í veikan aðdáanda.

Brendan McGlone er 14 ára írskur drengur sem greindist með hvítblæði fyrr á árinu. Hann hefur meira og minna dvalið á sjúkrahúsi það sem af er ári en símtal frá hetjunni hans gerði daga hans bærilegri.

McGregor hringdi í strákinn og spjallaði við hann um ferilinn í UFC og heimstúrinn fyrir UFC 189. McGregor hvatti strákinn áfram í baráttu sinni við sjúkdóminn.

Síðar um daginn sendi hann McGlone mynd af sér með Mike Tyson.

Þetta hefur vafalaust glatt strákinn og vonandi hjálpað honum í baráttu sinni við hvítblæði.

Það eru ekki allir aðdáendur Conor McGregor en allir hljóta að vera sammála um að þetta var fallega gert af honum.

spot_img
spot_img
spot_img
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Most Popular