Friday, April 26, 2024
HomeErlentDana White: Mun aldrei bóka Khabib gegn Tony Ferguson aftur

Dana White: Mun aldrei bóka Khabib gegn Tony Ferguson aftur

Dana White, forseti UFC, segist hafa gefist upp á að setja þá Tony Ferguson og Khabib Nurmagomedov saman í búrið. Bardagi þeirra féll niður í fjórða sinn í gær.

Þeir Tony Ferguson og Khabib eru tveir af bestu léttvigtarmönnum heims. Kapparnir áttu að mætast á UFC 223 á laugardaginn en í Ferguson meiddist í síðustu viku og getur ekki barist.

Á rúmum tveimur árum hefur UFC fjórum sinnum reynt að fá þá til að berjast en alltaf hefur eitthvað komið upp á. Núna hefur Dana White gefist upp á að láta þá berjast og ætlar ekki að bóka bardagann í fimmta sinn.

„Nei andskotinn hafi það! Ég mun aldrei setja þennan bardaga saman aftur. Aldrei!“ sagði Dana við ESPN í gær.

Þeir Max Holloway og Khabib Nurmagomedov verða í aðalbardaganum á laugardaginn en barist verður um léttvigtartitilinn.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular