Saturday, April 20, 2024
HomeForsíðaEiður gráðaður í svart belti

Eiður gráðaður í svart belti

Frá vinstri: Bruno, Eiður og Daði.

Eiður Sigurðsson var fyrr í mánuðinum gráðaður í svart belti í brasilísku jiu-jitsu. Eiður var gráðaður af Bruno Matias en Eiður er 25. Íslendingurinn til að fá svart belti í BJJ.

Gráðunin fór fram á námskeiði hjá Bruno Matias í húsakynnum VBC í Kópavogi. Bruno gráðaði Eið en hann gráðaði einnig Daða Stein (yfirþjálfari glímunnar í VBC) í svart belti fyrir rúmum þremur árum.

Eiður hefur verið einn af fremstu glímumönnum landsins undanfarin ár en hann sigraði opna flokkinn á Mjölni Open fyrr á árinu og er einnig margfaldur Íslandsmeistari.

Fyrr í sumar fékk Tómas Pálsson svart belti og með gráðuninni hjá Eiði hafa 25 Íslendingar fengið svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. Aðrir sem hafa hlotið þann heiður að fá svart belti í brasilísku jiu-jitsu eru í eftirfarandi röð: Haraldur Þorsteinsson, Gunnar Nelson, Arnar Freyr Vigfússon, Kári Gunnarsson, Ingþór Örn Valdimarsson, Axel Kristinsson, Bjarni Baldursson, Sighvatur Magnús Helgason, Þráinn Kolbeinsson, Jóhann Eyvindsson, Daði Steinn Brynjarsson, Ómar Yamak, Halldór Logi Valsson, Birkir Freyr Helgason, Jósep Valur Guðlaugsson, Aron Daði Bjarnason, Halldór Sveinsson, Kristján Helgi Hafliðason, Bjarki Þór Pálsson, Inga Birna Ársælsdóttir, Magnús Ingi Ingvarsson, Atli Örn Guðmundsson, Árni Ísaksson og Tómas Pálsson.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular