Í föstudagstopplista dagsins veljum við fimm uppáhalds hringspörkin okkar í MMA. Það eru eflaust fleiri flott til sem komust ekki á listann en hér eru þau fimm bestu að okkar mati. Góða helgi!
5. Vitor Belfort gegn Luke Rockhold. UFC on FX 8, 18. maí 2013.
TRT Vitor var einn ógnvænlegasti bardagamaður sem við höfum fengið að sjá. Hann rotaði hvern andstæðinginn á eftir öðrum með miklum tilþrifum en hans besta er líklegast rothöggið á Luck Rockhold í maí í fyrra.
4. Adam Khaliev gegn Alexei Belyaev – League S-70 Russian Championship, 22. desember 2011
Adam Khaliev samdi við UFC fyrir nokkru en hefur ekki enn fengið bardaga þar. Þetta rothögg hans árið 2011 vakti verðskuldaða athygli enda glæsilegt hringspark.
3. Uriah Hall gegn Adam Cella. Ultimate Fighter: Team Jones vs. Team Sonnen, 5. febrúar 2013
Uriah Hall var ótrúlegur í TUF og leit út fyrir að vera óstöðvandi í þáttunum. Aðrir bardagamenn virtust háld smeykir við hann og ekki að ástæðulausu. Hann hefur þó ekki alveg náð að standa undir væntingum en hefur þó sigrað tvo bardaga í röð í UFC.
2. Michael Page gegn Ben Dishman. UCMMA 26, 4. febrúar 2012.
Michael Page hefur klárað sex af sjö bardögum sínum í fyrstu lotu. Hér að neðan rotar hann Ben Disham eftir eina mínútu í fyrstu lotu en þetta var hans fyrst atvinnumannabardagi. Hann hefur vaxið síðan þá og berst nú í Bellator þar sem hann er ósigraður.
1. Edson Barboza gegn Terry Etim. UFC 142 – Aldo vs. Mendes, 14. janúar 2012.
Þetta rothögg verður lengi í minnum haft. Barboza var að sigra bardagann mjög örugglega og kom með þetta glæsilega hringspark í 3. lotu.
Hvert er ykkar uppáhalds? Látið okkur vita í athugasemdunum fyrir neðan.
Flottur listi Gutti en hvernig væri ef þið mundið setja upp á síðuna hjá ykkur fight stats hjá íslensku strákunum sem eru að berjast svo maður geti fylgst með því ?
Prime Fedor>TRT Vitor>Right circumstances Ronda>Broke Fitch