Annað kvöld munu þrír íslenskir bardagamenn frá Mjölni stíga í búrið og berjast á AVMA bardagakvöldinu. Einn af þremenningunum, Bjarki Þór Pálsson, birtist hér í Leiðinni að búrinu þar sem hann talar um bardagann og sinn síðasta bardaga.
Þetta verður í þriðja sinn sem Bjarki Þór (5-1) berst um titil en hann mætir núverandi meistara, Anthony Dilworth (6-3), um léttvigtarbelti AVMA. Í Leiðinni að búrinu talar Bjarki m.a. um sinn síðasta bardaga er hann sigraði Shinobi MMA léttvigtarbeltið. Þeir Bjarki Ómarsson og Magnús Ingi Ingvarsson berjast á sama bardagakvöldi en viðtöl við þá má sjá í tenglum hér að neðan.
Latest posts by Pétur Marinó Jónsson (see all)
- Tappvarpið #141: Frábær sigur Gunnars og UFC 286 uppgjör - March 22, 2023
- Gunnar með flest uppgjafartök í sögu veltivigtarinnar - March 19, 2023
- Gunnar Nelson með sigur í 1. lotu - March 18, 2023