Gunnar Nelson var í viðtali hjá Severe MMA á dögunum þar sem hann talaði um bardagann gegn Maia, æfingabúðirnar í Dublin og fleira.
Aðspurður hvort hann sé breyttur maður nú en fyrir ári síðan segir Gunnar svo vera: „Ég er nýr maður. Tapið gegn Story vakti mig en það voru líka hlutir í mínu einkalífi sem höfðu áhrif en mér líður mjög vel núna og er mótiveraður og líður eins og nýjum manni.“
Írski spyrillinn spurði Gunnar út í möguleikann á því að berjast á risavaxna leikvanginum Croke Park. „Það væri fallegt að berjast um titilinn þar.“