Það er fátt sem getur komið í veg fyrir bardaga Gunnars Nelson og Alex Oliveira á þessari stundu. Báðir náðu vigt og allt í góðu lagi fyrir bardagann.
Gunnar Nelson mætir Alex Oliveira á UFC 231 á morgun. Gunnar var 170,25 pund í vigtuninni áðan eða 77,4 kg. Leyfilegt er að vera einu pundi yfir í vigtuninni nema þegar um titilbardaga er að ræða.
Allir bardagamennirnir á UFC 231 hafa náð vigt og er því allt til reiðu fyrir morgundaginn. Max Holloway og Brian Ortega náðu báðir vigt en litu kannski ekki neitt sérstaklega vel út. Þær Valentina Shevchenko og Joanna Jedrzejczyk náðu einnig vigt en þær virkuðu í mun betra standi en Holloway og Ortega.
Vigtuninni er nú lokið og náðu allir bardagamenn- og konur kvöldsins vigt!