Jose Aldo mætir Jeremy Stephens á UFC on FOX 30 bardagakvöldinu í sumar. Bardaginn verður næstsíðasti bardagi kvöldsins.
Þetta verður í fyrsta sinn síðan í júní 2009 sem Jose Aldo er ekki að berjast um titil. Hans fyrsti titilbardagi var í WEC bardagasamtökunum gegn Mike Brown en síðan þá hafa allir hans bardagar verið fimm lotu titilbardagar.
Jose Aldo tapaði fjaðurvigtartitli UFC til Conor McGregor í desember 2015. Hann fékk svo beltið aftur með sigri á Frankie Edgar en tapaði því til Max Holloway. Hann átti að mæta Ricardo Lamas í desember í fyrra og hefði það verið fyrsti þriggja lotu bardagi hans um langt skeið en þegar andstæðingur Holloway meiddist, Frankie Edgar, steig Aldo inn og var því enn einu sinni kominn í titilbardaga.
Hann mætir Jeremy Stephens í Calgary þann 28. júlí en Stephens hefur verið á gróðri siglingu. Stephens hefur unnið þrjá bardaga í röð og gæti fengið titilbardaga ef hann vinnur fyrrum meistarann. Aldo hefur átt betri daga en hann hefur tapað þremur af síðustu fjórum bardögum sínum og þar af tvisvar í röð gegn Holloway.
Talið er að aðalbardagi kvöldsins verði titilbardagi í fluguvigt kvenna á milli Valentinu Shevchenko og meistarans Nicco Montano. Það hefur þó ekki verið staðfest af hálfu UFC.