Magnús Ingi Ingvarsson vann sinn fyrsta bardaga á EM nú rétt í þessu. Magnús er því kominn áfram í næstu umferð.
Magnús mætti Riyaad Pandy frá Suður-Afríku. Magnús gerði sér lítið fyrir og kláraði bardagann þegar ein sekúnda var eftir af 1. lotunni.
#Cage2 Result: Welterweight – Magnus Ingvarsson (Iceland) def. Riyaad Pandy (South Africa) via TKO (Round 1 – 2:59) #2016IMMAFEuros
— MyNextMatch (@mynextmatch) November 22, 2016
Magnús er því kominn með sinn fyrsta sigur á EM í veltivigtinni og keppir hann næsta bardaga á morgun. Magnús mætir þá Tomas Fiala frá Tékklandi en hann sat hjá í fyrstu umferð í dag. Fiala ætti því að vera nokkuð ferskur á morgun.