Ronda Rousey hefur verið á allra vörum síðan hún sigraði Cat Zingano á 14 sekúndum á UFC 184 um helgina. Mánudagshugleiðingarnar verða því að stórum hluta helgaðar henni.
Flestir áttu von á því að Cat Zingano myndi veita henni meiri mótspyrnu en síðustu andstæðingar. Svo reyndist ekki enda tók það Rousey ekki nema 14 sekúndur að klára hana með „armbar“. Það er margt áhugavert við þennan bardaga og skulum við líta á nokkra áhugaverða punkta.
- Þetta er fljótasti sigur í titilbardaga í sögu UFC
- Fljótasti sigur eftir uppgjafartak í sögu UFC
- Þetta er fyrsti titilbardaginn sem endar án þess að eitt högg hafi hitt
- Síðustu þrír bardagar Rondu Rousey hafa enst samanlagt eina mínútu og 36 sekúndur
- 11 bardagar Rousey hafa tekið samtals 25 mínútur og tvær sekúndur. Rétt rúmlega einn fimm lotu titilbardagi
- 8 af 11 bardögum hennar hafa verið styttri en mínúta
Síðustu tveir bardagar hennar hafa enst í 30 sekúndur og er nokkuð ljóst að hún er langt á undan samkeppninni í sínum þyngdarflokki. Eina mögulega ógnin hennar er Cristiane ‘Cyborg’ Justino en hún berst enn í þyngdarflokkinum fyrir ofan Rousey og það heldur henni frá UFC. Dana White hefur margoft sagt það og endurtók það á blaðamannafundinum að ef Cyborg getur náð 135 takmarkinu munu þeir fá hana yfir í UFC. Á meðan hún er enn í 145 punda flokknum er Cyborg óraunhæfur andstæðingur.
Skulum enda þennan Rousey póst með nokkrum skemmtilegum Twitter færslum.
It took me longer to write my first tweet about #rouseyVSzingano than the actual fight! #UFC184 @RondaRousey is a beast!
— Lennox Lewis (@LennoxLewis) March 1, 2015
Just incase Cyborg was feeling good about her 46 second stoppage…
— Dan Hardy (@danhardymma) March 1, 2015
Að lokum, Brock Lesnar var á svæðinu. Er hann að fara að snúa aftur í UFC?