Bardagi Bjarka Þórs gegn Alan Procter er kominn á netið í góðum gæðum. Bjarki vann bardagann eftir að Procter var dæmdur úr leik eftir ólöglegt hné.
Bjarki var að með töluverða yfirburði fyrstu tvær loturnar en í byrjun 3. lotu fékk Bjarki hné í höfuðið frá andstæðingi sínum á meðan hann var með bæði hné í gólfi. Slíkt er ólöglegt í MMA og eftir að dómarinn sá endursýningu á atvikinu var Procter dæmdur úr leik og var Bjarki úrskurðaður sigurvegari.
Bardagann má sjá í heild sinni hér að neðan.