Dana White, forseti UFC, var í viðtali á SportsCenter í gær. Í viðtalinu talar hann um hið magnaða UFC 194 bardagakvöld sem er eftir aðeins rúma viku.
Í viðtalinu kom einnig fram hver verður á forsíðu nýja UFC leiksins sem kemur út á næsta ári. Búið er að staðfesta Rondu Rousey á forsíðu leiksins en óvíst var hver hinn bardagamaðurinn yrði. Dana White staðfesti í viðtalinu að sigurvegarinn úr viðureign Aldo og McGregor muni vera á forsíðu leiksins ásamt Rousey.
Þá var hann einnig í þættinum Off The Record í Sportscenter.
https://www.youtube.com/watch?v=-EH60VrLA4M&feature=youtu.be