Léttvigtarmaðurinn Joe Lauzon birti skemmtilegt myndband á dögunum. Þar reyndi hann að veita æfingafélaga sínum þung skrokkhög sem virtust hafa lítil áhrif.
Joe Lauzon tekur það skýrt fram í upphafi myndbandsins að þetta sé ekki eitthvað sem fólk á að reyna heima hjá sér. Lauzon er reyndur bardagamaður í UFC og reyndi nokkur þung skrokkhögg á meðlim í bardagaklúbbi hans.