Það er mikið um að vera hjá Rondu Rousey þessa dagana. Hún var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon á dögunum og þá mun hún vera gestastjórnandi SportsCenter á ESPN í kvöld.
Ronda Rousey mætir Holly Holm á UFC 193 í næsta mánuði. Í þættinum hjá Jimmy Fallon sagði hún Holm vera sína stærstu ógn hingað til.
Hún talaði einnig um Floyd Mayweather og ummælin sem hún lét flakka á ESPY verðlaununum í sumar.
Eins og áður segir mun Rousey vera gestastjórnandi þáttarins SportsCenter á ESPN. Hún verður þar með fyrsta íþróttakonan sem stýrir þættinum en það þykir afar merkilegt í Bandaríkjunum. SportsCenter er vinsælasti íþróttaþáttur Bandaríkjanna en þátturinn með Rousey bak við borðið fer í loftið í kvöld í Bandaríkjunum.
UFC 193 fer fram 15. nóvember í Melbourne í Ástralíu.