Conor McGregor mætir Jose Aldo á UFC 194 í Las Vegas á laugardaginn. Líkt og síðast þegar hann barðist dvelur McGregor í glæsivillu.
Síðast er McGregor barðist í Las Vegas dvaldi hann í stórri villu sem fékk nafnið MacMansion. Þar dvaldi liðið í tvo mánuði fram að bardögunum á UFC 189 í sumar.
Að þessu sinni er hann í enn stærri villu sem lítur hreint út sagt ekki illa út. Þarna mun McGregor dvelja fram að bardaga sínum á laugardaginn en Gunnar Nelson og þjálfarar þeirra dvelja einnig í villunni.
Sjá einnig: Leiðin að búrinu – Gunnar Nelson gegn Demian Maia