Gunnar Nelson mætir Alan Jouban á laugardaginn á UFC bardagakvöldinu í London. UFC birti í gær viðtal við þá Gunnar og Jouban þar sem Gunnar virkar nývaknaður.
Þeir Gunnar og Jouban tala um bardagann en bardaginn er næstsíðasti bardagi kvöldsins á laugardaginn.
Gunnar er ekki þekktur fyrir að vera mikill morgunhani en þurfti greinilega að fara í myndatöku í gærmorgun. Gunnar birti þessa mynd í gær og spurning hvort hann viðtalið hafi verið tekið á svipuðum tíma.