Matt Brown átti ekki góða helgi í Brasilíu. Á laugardaginn tapaði hann fyrir Demian Maia og á sunnudagsmorgni var ráðist á hann.
Demian Maia sigraði Matt Brown á laugardaginn og hafði yfirburði nær allan bardagann. Á leið sinni í búrið var Brown sleginn þrívegis af aðdáendum.
Barsmíðarnar hættu ekki strax því í gærmorgun var ráðist á hann á hóteli hans. Í fyrstu var talið að óþekktur maður hefði hlaupið að Brown og slegið hann og flúið vettvang.
Random fan runs into hotel, hits Matt Brown, and runs. Matt’s friend catches him. Wow
— Brian Stann (@BrianStann) May 15, 2016
Nú hefur komið í ljós að maðurinn sem kýldi Brown er fyrrum BJJ þjálfarinn hans og hafa þeir átt í deilum lengi. Rodrigo Botti og Matt Brown hafa átt í orðaskiptum á samfélagsmiðlum og sakaði Botti Brown um að ganga í skrokk á sér (Colleen Brown er eiginkona Matt Brown og er ekki hlutlaus aðili).
Not a random fan who attacked Matt. It was Rodrigo Botti who is an absolute psycho.
— Colleen Brown (@Mrs_Immortal) May 15, 2016
In Feb 2015 Matt wore wrestling shoes on mats and Botti got pissed..shoved Matt so Matt fought back. Botti called cops like a wimp.
— Colleen Brown (@Mrs_Immortal) May 15, 2016
Botti réðst á Brown að aftan og hljóp strax í burtu. Vinur Brown elti hann uppi og náði honum fyrir utan hótelið. Það atvik má sjá hér að neðan.
Nú hefur Botti kært vin Matt Brown fyrir líkamsárás og er þessu máli eflaust ekki lokið.
https://www.youtube.com/watch?v=JS4Nao7MUSQ