Matt Brown átti ekki góða helgi í Brasilíu. Á laugardaginn tapaði hann fyrir Demian Maia og á sunnudagsmorgni var ráðist á hann.
Demian Maia sigraði Matt Brown á laugardaginn og hafði yfirburði nær allan bardagann. Á leið sinni í búrið var Brown sleginn þrívegis af aðdáendum.
Barsmíðarnar hættu ekki strax því í gærmorgun var ráðist á hann á hóteli hans. Í fyrstu var talið að óþekktur maður hefði hlaupið að Brown og slegið hann og flúið vettvang.
Random fan runs into hotel, hits Matt Brown, and runs. Matt’s friend catches him. Wow
Nú hefur komið í ljós að maðurinn sem kýldi Brown er fyrrum BJJ þjálfarinn hans og hafa þeir átt í deilum lengi. Rodrigo Botti og Matt Brown hafa átt í orðaskiptum á samfélagsmiðlum og sakaði Botti Brown um að ganga í skrokk á sér (Colleen Brown er eiginkona Matt Brown og er ekki hlutlaus aðili).
Not a random fan who attacked Matt. It was Rodrigo Botti who is an absolute psycho.