Dana White staðfesti í dag að Robbie Lawler mun berjast við Matt Brown þann 26. júlí. Bardaginn verður aðal bardaginn á UFC on Fox 12 bardagakvöldinu. Auk þess staðfesti White að sigurvegarinn fái að berjast við Johny Hendricks um titilinn.
Þar með er búið að eyða ákveðinni óvissu um hver fengi næstur að berjast um titilinn í veltivigt. Lawler og Brown eru báðir á mikilli siglingu en Lawler tapað mjög jöfnum bardaga við Hendricks um titilinn í mars eins og margir muna sennilega eftir. Matt Brown er búinn að vinna sjö bardaga í röð. Það er nánast öruggt að bardaginn á milli Lawler og Brown verður eftirminnilegur þar sem báðir eru þekktir fyrir að skemmta áhorfendum.
MMAJunkie staðfestir þetta hér.
Nice! þetta verður spennandi bardagi