Fanaments.com er nýr íslenskur íþróttaleikur sem byggir á hugmyndafræði „Draumadeildar“ en einskorðast við eina umferð eða íþróttaviðburð í stað heillar leiktíðar.
Fanaments býður upp á UFC-mót þar sem að spilarar velja fimm bardagamenn sem þeir telja að muni sigra sína bardaga og skila þeim hæstum fjölda stiga.
Bardagamennirnir eru verðlagðir eftir frammistöðu síðustu bardaga en spilarar hafa 100 milljónir til ráðstöfunar fyrir sitt lið.
Mótið hefst um leið og bardagarnir sjálfir og geta spilarar fylgst með nákvæmum leiklýsingum úr öllum bardögunum, stigum sinna bardagamanna og annarra spilara í mótinu – allt í rauntíma.