Thursday, April 25, 2024
HomeForsíðaÚrslit frá Grettismóti Mjölnis

Úrslit frá Grettismóti Mjölnis

grettismotið 2014 instaÍ dag fór Grettismótið fram en þetta er í annað sinn sem mótið er haldið. Keppt var í galla í fimm þyngdarflokkum karla og tveimur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka. Mótið fór vel fram en um 50 keppendur voru skráðir til leiks frá sjö félögum.

Margar frábærar glímur áttu sér stað í dag. Þeir Daði Steinn úr VBC og Ómar Yamak kepptu í úrslitum opna flokksins en báðir áttu frábæran dag. Daði Steinn sigraði allar glímur sínar á uppgjafartökum og átti svo sannarlega sigurinn skilið. Hann sigraði bæði opinn flokk karla og -79 kg flokkinn en sá flokkur var fjölmennasti flokkur mótsins. Ómar Yamak heldur áfram að bæta sig og var hrein unun að fylgjast með tæknilegum og yfirveguðum glímustíl hans.

Sunna Rannveig Davíðsdóttir sigraði opinn flokk kvenna, annað árið í röð. Hún sigraði að auki sinn þyngdarflokk og glímdi vel í dag. Andstæðingur hennar í úrslitum opna flokksins, Brynja Finnsdóttir, sigraði sinn þyngdarflokk og hafnaði í öðru sæti í opna flokknum. Það er frábær árangur á hennar fyrsta stóra glímumóti.

Hér má sjá helstu úrslit mótsins.

-64 kg flokkur kvenna

1. sæti: Sunna Rannveig Davíðsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC)
3. sæti: Edda Elísabet Magnúsdóttir (Mjölnir)

+64 kg flokkur kvenna

1. sæti: Brynja Finnsdóttir (Fenrir)
2. sæti: Dóra Haraldsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Ingibjörg Hulda Jónsdóttir (Fenrir)

-68 kg flokkur karla

1. sæti: Ómar Yamak (Mjölnir)
2. sæti: Pétur Óskar Þorkelsson (VBC)
3. sæti: Ari Páll Samúelsson (VBC)

-79 kg flokkur karla

1. sæti: Daði Steinn (VBC)
2. sæti: Helgi Rafn Guðmundsson (Sleipnir)
3. sæti: Pétur Jónasson (Mjölnir)

-90 kg flokkur karla

1. sæti: Agnar Ari Böðvarsson (Fenrir)
2. sæti: Sveinbjörn Iura (Ármann)
3. sæti: Eiður Sigurðsson (Mjölnir)

-101 kg flokkur karla

1. sæti: Birgir Rúnar Halldórsson (Mjölnir)
2. sæti: Birkir Már Benediktsson (Mjölnir)
3. sæti: Arnar Jón Óskarsson (Gleipnir)

+101 kg flokkur karla

1. sæti: Brynjar Örn Ellertsson (Mjölnir)
2. sæti: Eggert Reginn Kjartansson (Mjölnir)
3. sæti: Eggert Djaffer (Mjölnir)

Opinn flokkur kvenna

1. sæti: Sunna Rannveig Davíðsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Brynja Finnsdóttir (Fenrir)
3. sæti: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC)

Opinn flokkur karla

1. sæti: Daði Steinn (VBC)
2. sæti: Ómar Yamak (Mjölnir)
3. sæti: Eggert Djaffer (Mjölnir)

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular