UFC staðfesti loksins seinni viðureign Conor McGregor og Nate Diaz. Bardaginn verður aðalbardagi kvöldsins á UFC 200 í júlí.
Ariel Helwani greindi fyrst frá þessu um miðjan mars en þetta var loksins staðfest í þættinum UFC Tonight fyrr í kvöld.
Nate Diaz sigraði Conor McGregor á UFC 196 fyrr í mánuðinum en bardagakvöldið var það næstsöluhæsta í sögu UFC. Bardagasamtökin ætla því að endurtaka leikinn og mun bardaginn fara fram í veltivigt líkt og fyrri bardaginn.
Þá munu þeir Frankie Edgar og Jose Aldo mætast sama kvöld um bráðabirgðartitil (e. interim title) í fjaðurvigtinni. Fjaðurvigtarmeistarinn, Conor McGregor, er ekki að verja beltið sitt þessa dagana og því munu þeir Edgar og Aldo berjast um bráðabirgðartitilinn.
UFC 200 fer fram þann 9. júlí í T-Mobile Arena í Las Vegas.
Þetta setur upp Aldo/Edgar vs Mcgregor í Madison Square Garden í haust um fjaðurvigtar titilinn.
Þetta er mun skárra en ég átti von á þó að þetta fyrirkomulag sé frekar skrítið.