Næsta titilvörn Daniel Cormier verður gegn Anthony Johnson. Bardaginn fer fram á UFC 206 í Toronto í Kanada þann 10. desember.
Þetta tilkynnti Daniel Cormier í gær í þættinum UFC Tonight. Léttþungavigtarmeistarinn Daniel Cormier hefur ekki varið titilinn sinn síðan í október í fyrra. Þá sigraði hann Alexander Gustafsson á UFC 192 eftir klofna dómaraákvörðun. Cormier átti svo að mæta Jon Jones á UFC 197 í apríl á þessu ári en þremur vikum fyrir bardagann meiddist Cormier.
Jones og Cormier áttu svo aftur að mætast á UFC 200 en nokkrum dögum fyrir bardagann féll Jones á lyfjaprófi og kom Anderson Silva í hans stað. Bardagi Cormier og Silva var ekki titilbardagi og því verður bardaginn í desember fyrsta titilvörn Cormier í rúmt ár.
Daniel Cormier varð léttþungavigtarmeistari eftir sigur á Anthony Johnson á UFC 187 í fyrra. Cormier kláraði Johnson með uppgjafartaki í 3. lotu. Johnson hefur verið á mikilli siglingu síðan hann tapaði fyrir Cormier og fær hér verðskuldað annað tækifæri. Hann hefur nú unnið þrjá bardaga í röð, alla með rothöggi, en síðast vann hann Glover Teixeira með rothöggi eftir 13 sekúndur.