Þegar Newell fæddist vantaði á hann neðri hlutann af vinstri handlegg hans. Hann lét það aldrei hafa mikil áhrif á sig og æfði glímu á skólaárum sínum. Hann einblíndi á að vera enn tæknilegri en andstæðingar sínir vegna fötlun sinnar. Af 13 sigrum hans komu átta eftir uppgjafartök. Newell getur vel við unað eftir góðan feril og hefur veitt mörgum innblástur.
Newell var gráti næst þegar hann tilkynnti ákvörðun sína eins og sjá má í viðtalinu hér að neðan.