Thursday, April 18, 2024
HomeForsíðaGunnar aðstoðar Conor McGregor við upptökur á TUF

Gunnar aðstoðar Conor McGregor við upptökur á TUF

Gunnar Nelson
Gunnar í TUF æfingasalnum þar sem þættirnir eru teknir upp. Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Gunnar Nelson er á leið til Las Vegas þar sem hann mun aðstoða Conor McGregor við þjálfun á nýjustu seríu The Ultimate Fighter. Þeir Conor McGregor og Urijah Faber eru þjálfarar í nýjustu seríu TUF en þættirnir verða frumsýndir í september.

Gunnar flaug út í morgun og mun vera í Las Vegas þar sem upptökur fara fram í eina til tvær vikur. Hann mun koma til með að aðstoða McGregor en hann þjálfar lið Evrópumanna. Bandaríkjamaðurinn Urijah Faber þjálfar lið Bandaríkjanna en evrópskir og bandarískir bardagamenn berjast gegn hvor öðrum í seríunni.

The Ultimate Fighter er raunveruleikaþáttur þar sem upprennandi bardagamenn keppast við að fá samning hjá UFC. Þetta er 22. sería TUF en þættirnir eru sýndir á Fox Sports 1. Fyrsti þátturinn fer í loftið miðvikudaginn 9. september.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular