Tuesday, March 19, 2024
HomeForsíðaMánudagshugleiðingar eftir UFC Fight Night: Edgar vs. Swanson

Mánudagshugleiðingar eftir UFC Fight Night: Edgar vs. Swanson

edgar swansonÁ laugardagskvöldið fór fram UFC Fight Night: Edgar vs. Swanson í Austin í Texas. Bardagakvöldið var ágætis skemmtun þar sem Frankie Edgar minnti rækilega á sig.

Frankie Edgar sigraði Cub Swanson með miklum yfirburðum. Hann sigraði allar loturnar og hengdi Swanson þegar fjórar sekúndur voru eftir af 5. lotunni. Þetta var nýtt met í UFC en aldrei áður hefur bardagamaður klárað bardaga þegar svo lítið er eftir af bardaganum.

Sigurinn hjá Edgar er að vissu leiti sigur fyrir Conor McGregor líka. Hefði Cub Swanson sigrað hefði verið mjög erfitt að neita honum um titilbardaga enda hefði þetta verið hans sjöundi sigur í röð í UFC. Eftir tapið hjá Swanson er nánast öruggt að Conor McGregor fái titilbardaga gegn Jose Aldo takist honum að sigra Dennis Siver í janúar.

swanson laminnTapið hjá Swanson er það sjötta á ferlinum en hann hefur nú tapað fyrir Jose Aldo, Frankie Edgar, Chad Mendes og Ricardo Lamas. Allt eru þetta gríðarlega sterkir bardagamenn og gæti þetta bent til þess að Swanson sé einfaldlega ekki nægilega góður til að sigra þessa topp 5 bardagamenn. Hann er engu að síður einn af skemmtilegustu fjaðurvigtarmönnunum og klárlega einn af tíu bestu í þyngdarflokkinum.

Bobby Green kom inn í bardagann gegn Edson Barboza með enga (eða lélega) leikáætlun og leyfði Barboza að sparka í sig að vild. Það eina sem hann gerði var að hrista af sér spörkin og veifa fingrinum að Barboza til marks um að höggin hefðu engin áhrif á hann. Hvort sem hann fann fyrir höggunum eða ekki hafði þetta engin áhrif á dómarana og sigraði Barboza allar loturnar. Green vakti mikla athygli í vikunni þegar hann talaði um að hann gæti lagt hanskana á hilluna. Hann fór ekkert nánar í þetta fram að bardaganum en það verður athyglisvert að sjá hvað hann gerir næst.

Næsta UFC bardagakvöld er þann 6. desember þegar UFC 181 fer fram. Það verður risa bardagakvöld þar sem tveir titilbardagar fara fram. Johny Hendricks ver veltivigtarbelti sitt gegn Robbie Lawler og Anthony Pettis mun verja léttvigtarbelti sitt gegn Gilbert Melendez.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular