Stemningin í vigtuninni fyrir UFC 231 var mjög vinaleg á milli Alex Oliveira og Gunnars Nelson. Kapparnir mætast á morgun í þrælspennandi bardaga.
Sjónvarpsvigtunin fyrir UFC 231 fór fram í Toronto fyrr í kvöld. Allir bardagamenn kvöldsins höfðu þegar náð tilsettri þyngd á hótelinu í morgun og var vigtunin í kvöld bara fyrir áhorfendur.
Alex Oliveira hefur verið vinalegur alla vikuna og var það sama uppi á teningnum í kvöld. Á sviðinu í vigtuninni stóðu þeir andspænis hvor öðrum í andartak áður en Oliveira tók bara utan um hann. Oliveira var að sjálfsögðu með kúrekahattinn á sviðinu.
OLIVEIRA vs NELSON!!! pic.twitter.com/5un5odtPMo
— Dana White (@danawhite) December 7, 2018
Oliveira sýndi lófan á vigtinni þar sem stóð „Fé“ en það þýðist sem trú (e. faith) á íslensku máli. Nú er ekkert framundan nema bardaginn sjálfur og er spennan heldur betur farin að magnast.