Fyrsti þáttur í podcasti MMA Frétta var tekinn upp í gær. Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson, var fyrsti gestur þáttarins. Í þættinum fengum við Harald til að segja okkur aðeins frá umboðsmennsku í MMA.
Haraldur segir að það hafi ekki verið erfitt að fá Gunnar Nelson í UFC enda vissi hann af áhuga þeirra. Þegar Haraldi og Gunnari fannst kominn tími til að fara í UFC höfðu þeir samband við bardagasamtökin. UFC var ekki lengi að svara og hafði greinilega fylgst vel með Gunnari. Haraldur gerði einnig fyrsta samning Conor McGregor við UFC en það var ekki eins auðvelt og í tilviki Gunnars.
Talið kom að Reebok samningi UFC og segir Haraldur að núverandi samningur feli í sér minni tekjur fyrir Gunnar að þessu sinni. Við ræddum einnig um steramál í MMA, UFC 189, John Hathaway og UFC 188.
Við viljum þakka Atla Má Steinarssyni fyrir aðstoðina, án hans hefði þetta ekki verið hægt. Allan þáttinn má hlusta á hér að neðan.