HomeErlentSterling yfirspilaði Zalal og sendi skýr skilaboð til toppsins

Sterling yfirspilaði Zalal og sendi skýr skilaboð til toppsins

Aljamain Sterling mætti Youssef Zalal í aðalbardaga kvöldsins í Apexinu í gærkvöldi og það varð fljótt ljóst að þetta yrði taktísk og krefjandi viðureign fyrir báða menn.

Fyrir bardagann var Zalal talinn sigurstranglegri hjá Coolbet en inni í búrinu leit Sterling alls ekki út eins og maður sem átti að vera á eftir. Þvert á móti tók hann yfir bardagann með reynslu, ró og yfirburðum í glímunni.

Zalal byrjaði vel og nýtti stunguna sína til að halda Sterling frá sér. Hann stjórnaði fjarlægðinni á köflum og lenti með hreinum höggum þegar hann fékk að pressa áfram. Sterling svaraði þó með fellutilraunum og náði Zalal upp að búrinu þar sem hann gat byrjað að vinna að sinni leikáætlun.

Í fyrstu lotu náði Sterling góðum tökum á gólfinu eftir vel tímasetta fellu. Zalal reyndi uppgjafartök af bakinu en Sterling hélt ró sinni, slapp úr hættunni og hélt áfram að vinna. Lotan var jöfn en Sterling líklega skrefinu á undan undir lokin.

Önnur lota fór skýrt í átt til Sterling. Hann pressaði, náði fellu og þegar hann komst á bakið með body triangle sýndi hann hversu hættulegur hann er í þeirri stöðu. Þar var hann límdur við Zalal eins og bakpoki og lét höggin rigna niður.

Í þriðju lotu kom svar frá Zalal. Hann náði að snúa stöðunni við eftir fellutilraun frá Sterling með guillotine-tilraun og endaði ofan á, þar sem hann hélt Sterling niðri restina af lotunni. Þó vantaði meiri skaða og Sterling lifði þetta af án þess að lenda í alvarlegri hættu.

Fjórða lotan var einhliða. Sterling jók tempóið, náði aftur bakinu og body triangle, og refsaði Zalal með stöðugum höggum. Hann flæddi vel í glímunni – tók bakið, tók mountið og aftur á bakið, og Zalal átti erfitt með að svara. Þetta var mjög sterk lota frá Sterling sem leitaðist allt við að valda skaða og allir dómarar dæmdu hana 10-8.

Í fimmtu og síðustu lotunni hélt Sterling áfram á sömu braut. Hann pressaði Zalal upp að búrinu, náði fellum og þegar hann komst aftur á bakið undir lokin var hann óþreytandi í höggunum og kláraði bardagann af krafti.

Sterling sýndi greinilegan mun þegar kom að því að nýta yfirburðastöður. Þar sem Zalal stjórnaði án mikils skaða, var Sterling miskunnarlaus þegar hann komst á bakið og lét höggin tala.

Eftir bardagann lét Sterling heyra í sér. Hann kallaði eftir bardaga við Movsar Evloev og nefndi jafnframt að Alexander Volkanovski væri næstur þar á eftir. Hann benti á að þrátt fyrir langan feril hefði hann aðeins fengið fáa andstæðinga sem hafa ekki verið á topp 15 lista og bað um meiri virðingu fyrir nafni sínu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið