Farið var um víðan völl í 36. þætti Tappvarpsins. Þar fórum við yfir risa boxbardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor sem tilkynntur var í síðustu viku og Gunnar Nelson og æfingabúðirnar hans fyrir bardagann gegn Santiago Ponzinibbio svo fátt eitt sé nefnt.
Fórum einnig aðeins yfir UFC bardagakvöldið um síðustu helgi í Singapúr og Bellator kvöldið sem er framundan. Þá litum við einnig á stöðuna sem Germaine de Randamie er í eftir að hún var svipt titlinum.